Á afmælisdaginn minn árið 1989 birti Nýtt Helgarblað Þjóðviljans grein eftir mig undir þessari fyrirsögn. Þar var á ferð fréttaskýring um átök í gamla ættarveldi frænda minna í Bolungarvík. Íslendingabók sýnir nefnilega að ég er fjórmenningur við Einar K. Guðfinnsson og önnur barnabörn nafna hans og afa sem stofnaði fyrirtækjaveldið í Víkinni.