Helgarpósturinn 11. júlí 1980
Sumarið 1980 var komið að máli við mig í Árósum í Danmörku þar sem ég bjó og ég beðinn að taka viðtal við jafnaldra minn frá Frakklandi og senda það til birtingar í Helgarpóstinum sem ég skrifaði pistla í. Ég tók því vel og hitti manninn sem síðar átti eftir að setja mark sitt á pólítíska umræðu á Íslandi. Maðurinn hét Patrick Gervasoni og þegar ég hitti hann vissi enginn um hann á Íslandi. Skömmu síðar nötraði íslenska ríkisstjórnin út af honum.