Árið 2012 leitaði ritnefnd Tímarits félagsráðgjafa eftir því að ég sæi um þann hluta ársritsins sem nefndur er Samfélagsumræðan. Hafandi verið giftur félagsráðgjafa um áratuga skeið gat ég náttúrlega ekki sagt nei heldur tók að mér verkið og sinnti því til starfsloka. Hér verður birtur hluti þeirra greina sem ég skrifaði. Fyrst verður fyrir grein frá 2013 um samskipti félagsráðgjafa við fjölmiðla.