Bændablaðið
Árið 1995 keyptu nýstofnuð Bændasamtök Íslands útgáfuréttinn á Bændablaðinu sem Bjarni Harðarson og fleiri höfðu haldið úti. Skömmu síðar fór ég að skrifa fyrir blaðið og reyndar einnig Búnaðarritið Frey, auk ýmissa smærri verka. Það æxlaðist svo þannig til að árið 2006 tók ég við ritstjórn Bændablaðsins og sinnti því starfi í tæp fimm ár. Þá sagði ég upp vegna ágreinings við framkvæmdastjóra og formann Bændasamtakanna sem töldu sig hafa meira vit á útgáfumálum en ég. Þeir voru raunar einu mennirnir sem ég vissi af sem voru óánægðir með blaðið.
9. desember, 2003 | Bændablaðið, Greinar á íslensku
Áður en ég var fastráðinn að Bændablaðinu vann ég ýmis verk þar sem lausamaður. Meðal þess var að sjá um fjögurra síðna blaðauka um áhrif ESB-aðildar á íslenskan landbúnað sem birtist skömmu fyrir jól 2003. Þetta mæltist nokkuð vel fyrir hjá bændaforystunni sem hafði...
10. október, 2006 | Bændablaðið, Greinar á íslensku
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar um tillögur flokksins um lækkun matarverðs Bændablaðið 10. október 2006 Hér að neðan er viðtal sem ég tók haustið 2006 við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, þáverandi formann Samfylkingarinnar, og birti...
12. desember, 2006 | Bændablaðið, Greinar á íslensku
Þegar Reykjavíkurstrákur settist í ritstjórastól hjá málgagni bænda og landsbyggðar fann hann fyrir þörf til að uppfæra hartnær hálfrar aldar gömul kynni sín af sveitastörfunum. Róbótafjósið lá beint við. Tæknifjós2006Download
21. október, 2008 | Bændablaðið, Greinar á íslensku
– Bændablaðið slóst í för með 30 íslenskum sveitarstjórnarmönnum sem sóttu opna daga Héraðanefndar Evrópu í Brussel og fundu þar sóknarfæri og sambönd Dögunum sem íslensku bankarnir hrundu eyddi ég með íslenskum sveitarstjórnarmönnum í Brussel. Ég skrifaði...
13. janúar, 2009 | Bændablaðið, Greinar á íslensku
Ástralski hveitiræktarfræðingurinn Lindsey O’Brien er reglulegur gestur hér á landi Kornrækt óx hröðum skrefum árin sem ég vann á Bændablaðinu. Svo hröðum að ýmsar ákvarðanir og stefnumótun urðu æ meira aðkallandi. Lindsay O’Brien var því hvalreki inn í þá...
26. ágúst, 2010 | Bændablaðið, Greinar á íslensku
Eitt síðasta verkið mitt fyrir Bændablaðið var að sækja heim sveitina sem Eyjafjallajökull kaffærði að heita má með ösku í hamförunum sem þar urðu vorið 2010. Greinin birtist í ágústlok. Í septemberlok sagði ég upp sem ritstjóri....