Dagur
Haustið 1990 giftist ég öðru sinni og flutti með eiginkonu minni, Steinunni Hjartardóttur, og fósturdóttur, Þorbjörgu Söndru Bakke, til Dalvíkur. Næstu tvö árin ók ég á hverjum virkum degi inn til Akureyrar og starfaði á Degi, bæði við umbrot og blaðamennsku. Hér fylgja tvö sýnishorn af því síðarnefnda.
9. nóvember, 1991 | Dagur, Greinar á íslensku
– Jóhann Antonsson á Dalvík vill að allur fiskur verði seldur á innlendum mörkuðum og segir að stjórnmálamenn eigi ekki að velta sér upp úr fortíðarvanda heldur benda á leiðir inn í framtíðina Helgarviðtal Dags 9. nóvember 1991...
18. janúar, 1992 | Dagur, Greinar á íslensku
Þessi fréttaskýring úr Degi á Akureyri er skólabókardæmin um það sem kalla má „landsbyggðarblaðamennsku“. Á síðunni er stór bleikur fíll sem enginn sér. Eina vísbendingin um hann er þessi setning: „Ástæður uppsagnarinnar verða ekki tíundaðar hér en þær tengjast ekki...