Norrænu blaðamannasamtökin skipuleggja árlega það sem kallað er Kulturtræf. Þá fer hópur norrænna blaðamanna í menningarreisu til einhvers lands til að kynna sér menningu þess og sögu. Skipulagðir eru fundir með þarlendum blaðamönnum og fulltrúum stjórnvalda og menningarmála, auk þess sem ferðalangar sækja tónleika, óperu og leikhús. Ég tók þátt í slíkri ferð til Lettlands vorið 2003 og gerði þrjá útvarpsþætti sem fluttir voru þá um sumarið á Rás 1.